|
|
22.12.2006 12:49:04 / hulle
Gleðileg jól og farsælt komandi
ár!

Jólakveðjur,
Hulda Héraðsstubbur og co.
»
10.10.2006 13:04:13 / hulle
Hellú,
Langt síðan að ég bloggaði síðast hérna inni (við erum annars
líka komin með "fjölskyldu" blogg á www.123.is/megas)
Annars var ég að fatta það um daginn að lífið mitt er eins og í
Bjarkar myndbandinu "Triumph of the heart" þar sem Björk og
kötturinn Murrmurr eru í aðalhlutverki. Ég held að ég sé farin að
skilja kattarmál, enda höngum við mikið saman þessa dagana þegar
Jón er ekki heima.
Ég reyni að blogga hérna og líka á hinni síðunni.
bk,
Hulda
»
12.05.2006 11:07:41 / hulle
Úff... þetta er erfiðara en ég hélt að vera svona í fríi. Nægur
frítími með heilanum á mér sem leiðir til þess að ég er farin að
hafa áhyggjur af ótrúlegustu hlutum, t.d. að Jón VERÐUR að fá sér
ISIC kort fyrir ferðina, ég VERÐ að eignast Martini glös
þannig að ég get fengið mér almennilegt Martini á laugardaginn
o.s.frv.
Það er líka skrýtið að vera komin í frí þegar Jón er ekki í
fríi, hann hefur nefnilega svo oft verið búinn á undan mér, ég
flögra bara um heima eins og vængbrotinn fugl 
Jæja best að byrja að pakka, það er víst nóg eftir þar!
kv,
heilinn hennar Huldu sem hrökk loksins í gang
»
08.05.2006 22:54:29 / hulle
Ég var að fá besta camenbert sem ég hef á ævi minni fengið núna
áðan, þetta var fullkomnun! Hann lak niður í miðjunni og svo var
hann svo yndislega bragðgóður vá!
Já og svo var ég að klára síðasta prófið mitt úr Háskóla Íslands
núna á laugardaginn, það var bara nokkuð fínt. Svo er ég að leggja
loka hönd á BA ritgerðina mína, á bara eftir að prenta hana út.
Á morgun fer ég svo að veiða í Elliðavatni með sumargjöfinni sem
hann Jón gaf mér í fyrra (óopnuð veiðistöng ).
Þann 17. erum við svo flogin út til Parísar, djöfull skal étið
þá! Rauðvín og ostar í öll mál og Pain au chocolat á morgnana! Ó my
shit hvað ég hlakka til. Svo verður farið til Rómar og þar verður
líka mikið étið og drukkið ummm...
Anyhow, læt þetta duga í bili.
Húlle
»
18.04.2006 10:30:18 / hulle
Ég veit að þið eruð alveg ólm í að heyra hvað ég gerði um
páskana! Ég skildi kallinn eftir heima (hann þurfti að læra og
eitthvað vesen) þannig að við mamma ákváðum að skreppa
til Hólmavíkur yfir páskana, en hún er frá Gilsstöðum í Selárdal á
Ströndum (rétt hjá Hólmavík), ég var þar einnig öll sumur sem
krakki. Við heimsóttum ömmu mína (mömmu mömmu, eða ömmu Ninnu,
heitir fullu nafni Finnfríður Benedikta Hjartardóttir) og þar voru
nánast öll systkini mömmu komin (vantaði reyndar þrjú, en þau eru
alls átta). Okkur var boðið í dýrindis steik hjá Rósa bróður mömmu
og svo tók Hjörtur bróðir mömmu upp gítarinn og allir fóru að spila
og syngja (það spila allir á gítar í fjölskyldu mömmu, þ.m.t. amma
mín sem á þennan fína klassíska gítar heima hjá sér, og mamma að
sjálfsögðu líka). Svo voru sagðar nokkrar gamansögur, þó aðallega
um hana ömmu mína, en hún tók upp á því einu sinni að keyra inn í
banka (óviljandi) síðan þá hefur þessi elska ekki keyrt hún
skellihló að þessu öllu saman (enda búin að drekka nokkur
hvítvínsglös).
Síðan trítluðu allir niður í sláturhúsið þar sem Hjörtur frændi
er með smá stúdíó og þar var sungið og trallað til tvö um nóttina.
Undirrituð steig meira að segja á stokk og söng nokkur lög, Víðir
frændi spilaði undir á gítar. Þetta var svo ekki alveg nóg fyrir
okkur þannig að við ákváðum að halda áfram á Café Riis, þar var
tónlistarkennari Hólmavíkur með sjóv og spilaði meðal annars "Til
hamingju Ísland" með Silvíu Nótt í trúbadora stíl, þrusuflott! Mér
leið svona eins og í Cheers ("where everybody knows your name") en
þar kom til mín kona og sagði við mig að ég væri frænka sín (hún
var reyndar augafull) en hún sagði mér frá því að langafi hennar og
langafi minn væru systkin (frekar langsótt, en samt
áhugavert) svo var kallað hátt og snjallt á mig og svo var
þrifsað í mig og ég föðmuð í bak og fyrir en þá var það Gunnsi
frændi, það var ekki þverfótað fyrir ættingjum! Við mamma vorum
orðnar ansi strautlegar um þrjúleytið og héldum þá heim á leið.
Daginn eftir var haldið inn í dal (Selárdal) þar sem allir
voru að keppa á gönguskíðum (Númi litli frændi minn reyndi allt til
að fá mig til þess að keppa) ég efast um að ég hefði komist langt
miðað við ástandið sem ég var í eftir kvöldið áður. Við heimsóttum
Hjört Þór frænda og Hildi konu hans á Geirmundarstöðum (rétt hjá
bænum hennar mömmu). Þetta var alveg geypilega gaman en hún Hildur
er alveg rosalega flink að vinna úr ull, hún skilur þetta í sundur
í þel og tog og svo spinnur hún ullina og prjónar úr þessu
glæsilegar flíkur, hún ætlar að taka mig á námskeið einhvern
daginn. Svo renndum við heim og amma eldaði þessa dýrindis steik og
að sjálfsögðu fékk maður rauðvín með. Ömmu fannst ekki annað hægt
en að kenna mér að spinna og tók þá fram rokkinn sinn og sýndi mér
hvernig þetta væri gert, þannig að ég var fyrir framan rokkinn allt
laugardagskvöld að spinna, baðstofufílingur á þessu. Svo var haldið
heim á sunnudeginum með sorg í hjarta.
Hulda í fortíðarljómatrans
Ættaróðalið Gilsstaðir

»
06.04.2006 16:50:39 / hulle
Jæja núna erum við Jón og KB banki orðnir stoltir eigendur af
íbúð 306 í Blómvangi á Egilsstöðum. Þið getið skoðað myndir af
íbúðinni undir "Myndir" hér til vinstri, njótið vel 

»
06.04.2006 09:00:30 / hulle
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert
sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum
að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar.
Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður,
ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú
ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur
á skýi í háloftunum.

Ef þið viljið lesa meira um ykkar stjörnumerki þá finnið þið link
hérna á vinstri hönd
Ykkar,
Húlle
»
05.04.2006 19:06:18 / hulle
Hmm... spurning að prufa eitthvað nýtt!
| You Should Get a MFA
(Masters of Fine Arts) |
|

You're a blooming artistic talent, even if you aren't quite
convinced.
You'd make an incredible artist, photographer, or film
maker. |
»
21.03.2006 13:12:09 / hulle
Það rann gleðitár niður vangann minn þegar ég var í búðinni um
daginn að kaupa mjólk. Ég rak augun í eitthvað sem ég hef ekki séð
í möööörg ár..... elífiðarkúlu (ens. Jawbreaker). Hver man
ekki eftir því að vera með troðfullan kjaftinn að sjúga þetta
góðgæti? Fólki fannst ég vera óvenju feimin og þögul þegar ég var
lítil stúlka en ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að ég var
iðulega með túllann fullan af eilífiðarkúlu. Það besta er svo þegar
maður nær innsta laginu á kúlunni að bíta fast í, þá
hrekkur kúlan í sundur og verður að tyggjói. 
Eftir þessa yndislegu endur-uppgötvun þá er ég
komin í fortíðarljómatrans (nostalgíutrans) og nú vil ég einnig að
bláa húbbabúbbaið og svörtu hlunkarnir komi aftur!
Smattkveðjur,
Hulda

»
07.03.2006 15:15:13 / hulle
Jæja, minn heittelskaði er víst búinn að klukka mig:
4 störf sem ég hef unnið um ævina: Saalt voyages,
Négoti voyages, Aviastrong voyages, ferðaráðgjafi
Flugfélag Íslands, vann í bókunardeild
Icelandair, svara overflow símtölum frá Frakklandi og bóka flug
Upplýsingamiðstöð ferðamanna, upplýsingafulltrúi og vaktstjóri
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Indiana Jones myndirnar (Harrison Ford arwwwwrrhhhh....)
Me myself and Irene
There is something about Mary
Amélie Poulain
4 staðir sem ég hef búið á:
Reynihvammur 20 Kópavogi (í stúdíóíbúð hjá ma og pa, algjört
partýpleis!)
Rue Vélane, Toulouse Frakkland
Fjallalind 23 Kópavogi
Eggertsgata 20 stúdentagörðum, Reykjavík
4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
Simpsons fjölskyldan
Friends
Oprah
24
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Frakkland
Glasgow
Danmörk
Vestfjarðarkjálkinn
4 heimasíður sem ég skoða daglega:
Ó my.... ég er algjör tölvufíkill
Alls kyns blogg
mbl.is sértstaklega fasteignasíðuna
Femin.is
hi.is
4 máltíðir sem ég held upp á:
Kjötsúpan hennar múttu er og verður alltaf í 1.sæti
Svínarifin og sauðnautið hans Vigga
Lambalæri
Gríski kjúllinn hans Buxa
4 bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
Cosmopolitanblöð
Ferðahandbækur
National Geographic
Allar sjálfshjálparbækurnar mínar!
4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
Danmörk
Frakklandi í sólbaði meðfram Garonne ánni (reyndar eftir 3
mánuði!)
Í baði, ekki í sturtu
Í minni eigin íbúð með baði ekki sturtu!
Ég klukka alla sem lesa bloggið mitt og eru ekki ennþá búnir að
gera svona klukk!
Ykkar,
Húlle
»
04.03.2006 14:10:33 / hulle
Jæja, þið megið öfunda mig núna. Móðir mín, sem er eins og allir
vita sannkallaður snillingur, var að bjóða mér með sér í mæðgaferð
til London á kveðjutónleika BB King. Við förum kl. 07.45 31.mars og
komum heim aftur 2.apríl, tónleikarnir verða svo 1.apríl. EKKERT
smá GAMAN veiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!!! ójeeeehhhh 

Annars er bara allt ágætt að frétta, held áfram að skrifa í
ritgerðinni svona við og við en Muse-in skrapp eitthvað í frí er
bara að bíða eftir því að hún komi heim aftur.
Núna eru BB King (Sweet Little Angel er GOTT lag) og svo Jack
Johnson mest á fónum hjá mér, dásssssamlegt jehhh!
Kiss,
Húlle
»
26.02.2006 21:24:48 / hulle
Áhugavert að telja þetta allt saman. Hef sumsé heimsótt 18 lönd
eða 8% af heiminum. Jaso.

http://www.world66.com/myworld66/visitedCountries/worldmap?visited=CAGLUSADBEDKFOFRDEISIEITLUNOPTESSEUK">
>
create">http://www.world66.com/myworld66">create
your own visited country map
or check our Venice">http://www.world66.com/europe/italy/veneto/venice">Venice
travel guide
bk,
Hulle
»
08.02.2006 11:18:51 / hulle
Mikið svakalega er ég fegin því að hafa hætt við að fara til
Túnis!! Það var verið að mæla gegn því að norðurlandabúar færu til
múslimalanda, óbójóbój. Við förum í staðin til mekka kaþólikka, Róm
og Vatíkanið við hliðin á.
Mér finnst þetta afskaplega sorglegt allt saman og ég verð að
viðurkenna það að ég hef miklar áhyggjur af gangi mála. Ég vona
bara að þetta rætist allt saman milli múslima og evrópubúa annars
er ég hrædd um að þetta stefnir allt í þriðju heimstyrjöldina.
bk,
Hulda áhyggjufulla
»
01.02.2006 19:07:55 / hulle
Jæja! Nú er maður bara á leiðinni til Rómar!! Við Jón hættum við
að fara til Túnis en erum á leiðinni til Rómar í staðinn. Hvorugt
okkar hefur komið til Ítalíu þannig að okkur fannst þetta bara
alveg upplagt. Svona hljómar ferðaplanið:
17.maí Brottför frá KEF - STN (London Stansted fyrir þá sem
kunna ekki svona fansí skammstafanir eins og ég). Þar ætlum við að
stoppa í nokkra klukkutíma og skoða Big Ben og fara í London Eye.
Svo hoppum við í flug frá Luton flugvelli til hinnar rómatísku
borgar París. Þar ætlum við að dúsa í 4 daga og fáum fría gistingu
hjá Sandrine vinkonu minni.
21.maí Brottför frá Orly flugvelli til Ciampino í Róm. Við
verðum þar í 7 daga að skoða og hafa það notó, skreppum jafnvel til
Pompei og Flórens hvur veit? Við gistum á 2* hóteli sem heitir því
skemmtilega nafni "Carlito's Way" geri aðrir betur!
28.maí Heimkoma með viðkomu í London (ég á ábyggilega eftir að
pína Jón til þess að koma með mér á Oxford Street!)
Hvernig lýst ykkur á þetta?
bk,
Húlle London-París-Róm fari 
»
13.01.2006 16:52:11 / hulle
Árið og takk fyrir það gamla!
Nú er mín bara komin í þægindapakka, er bara í tveimur fögum í
HÍ og svo heima þess á milli að "skrifa ritgerð".
Það helsta í fréttum er að ég var að fá vinnu í sumar hjá
Markaðstofu Austurlands, já nú verðum við hjúin hinum megin á
landinu í heila þrjá mánuði. Ég verð reyndar í svipaðri vinnu og
hérna fyrir sunnan að taka á móti ferðamönnum en þetta verður
ábyggilega aðeins smærra í sniðinu, enda ekki eðlilegt hvað það er
alltaf brjálað að gera hérna á uppló í Reykjavík! Svo ætla ég líka
að skrifa ritgerð um nýsköpun í ferðaþjónustu á Austurlandi,
vonandi tekst mér það.
Já svo má ekki gleyma því að ég og Buxi minn ætlum að smella
okkur til Túnis í maí í langþráð frí, ég kem líklega sólbrunnin til
baka.
Knús í kremjur!!
ykkar Hulda
»
Síður: 1 2 3
|
|